Vinahjörtu á skólalóðir grunnskóla hverfisins

Vinahjörtu á skólalóðir grunnskóla hverfisins

Vinahjörtu eru máluð á skólalóðir á vel valda staði. Þangað fara þau sem vantar einhvern að leika við og þá er þeim boðið í leik.

Points

Börn að leik á skólalóð eru etv ekki alltaf að horfa eftir því hvað önnur börn eru að gera. Með því að gera áhuga sinn til þátttöku sýnilegan með því að stíga á hjartað er auðveldara bæði fyrir önnur börn og starfsfólk á svæðinu að virkja þau í leik sem etv langar, en hafa sig ekki í frammi sjálf.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Hverfisráð fór yfir tækar hugmyndir og þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information