Bílastæði vantar í Fossvoginn

Bílastæði vantar í Fossvoginn

Stórt vandamál í Fossvoginum. Það vantar fleiri bílastæði t.d. í Snælandi. Íbúar í Fossvoginum verða að geta lagt bílum sínum við heimili sín. Ástæðan fyrir þessu bílastæðavandamáli í Snælandi er væntanlega vegna 32ja ósamþykktra íbúða sem var ekki gert ráð fyrir í upphafi skipulagningar götunnar. Það eru því fleiri íbúar í götunni nú og þar með fleiri bílar en áætlað var í upphafi. Það ætti að vera frekar einfalt að bæta við stæðum, t.d. með því að minnka stóra garða við blokkirnar sem eru lítið notaðir. Minni sláttur - áfram Reykjavík :)

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2018. Gerð bílastæða er skipulagsmál, skipulagsferli þess er of langt fyrir tímaramma verkefnisins. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information