Bæta við grenndargámum í Bakkahverfi

Bæta við grenndargámum í Bakkahverfi

Bakkahverfið vantar fleiri grenndargáma fyrir pappír og plast. Legg til að bætt verði við grenndargámum fyrir ofan Kóngsbakka þar sem það getur varla að talist umhverfisvænt að þurfa að aka plasti og pappír einu sinni í viku en Kóngsbakkablokkirnar eru þannig byggðar að íbúar hafa ekki aðgengi að ruslageymslum þar sem hægt væri að hafa flokkunartunnur. Það eru 96 íbúðir í þessum blokkum en þær voru byggðar fyrir tæpum 50 árum.

Points

Umhverfisvænt að geta gengið með pappann og plastið og þurfa ekki að keyra þar sem grenndargámar eru ekki í göngufæri.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Hverfisráð fór yfir tækar hugmyndir og þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information