Taka arfann af hringtorginu við Glæsibæ

Taka arfann af hringtorginu við Glæsibæ

Hringtorgið við Glæsibæ hefur verið undirlagt af sjálfsprottnu grasi og arfa síðustu ár. Þarna vantar að setja niður blóm eða annan aðlaðandi gróður svo þetta hringtorg sé ekki lengur sorglegur blettur í hverfinu.

Points

Um alla borg eru hringtorg og á flestum þeirra er aðlaðandi gróður til að gera umhverfið skemmtilegt. En þetta fjölfarna hringtorg virðist hafa gleymst undanfarin ár. Vinsamlegast gerið þetta hringtorg aðlaðandi að aka um.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Hverfisráð fór yfir tækar hugmyndir og þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Þetta þarf að gera út um alla borg ekki bara þarna

Væri til prýði fyrir umhverfið að gera þetta hringtorg snyrtilegt með fallegum gróðri.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information