Borðtennisborð úti

Borðtennisborð úti

Mig langar að stinga upp á að sett verði borðtennisborð utandyra á Klambratúni og á fleiri opin svæði í borginni. Þau þyrftu að vera jarðföst og úr efni sem þolir að standa úti allt árið. Gætu verið steypt eða úr gegnheilum viði. Hægt er að steypa fast "net" á borðið. Fólk kæmi síðan sjálft með net (ef þarf), spaða og kúlur.

Points

Einfalt, ódýrt, lítið viðhald og skapar frábært tækifæri til útiveru og afþreyingar fyrir alla aldurshópa.

Hugmynd þessi var metin tæk af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndin fór í framhaldi fyrir hverfisráð. Lokaniðurstaðan er sú að þessi hugmynd er ein af þeim 25 sem kosið verður um í haust 2018 í þínu hverfi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information