Strætóstopp við Reynisvatnsveg

Strætóstopp við Reynisvatnsveg

Áður fyrr var strætóstopp fyrir neðan stúdentagarðana, klausturstíg og kappellustíg. Nú þarf að ganga alla leið upp í hverfi að sæmundunarskóla til þess að taka strætó í háskólann. Margir námsmenn hafa ekki fjármagn fyrir bíl og samgöngur erfiðar, þar sem strætó þarf að keyra í gengum allt hverfið áður en keyrt er úr Grafarholti og getur verið tímafrekt. Mjög furðulegt að það sé ekki strætóstopp við stútentagarðana. Einnig væri gott ef næturstrætó myndi ganga um helgar einsog í Grafarvogi :)

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosninguna í verkefninu Hverfið mitt 2018. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information