Sleðabrekka og útisvið við Gufunesbæ

Sleðabrekka og útisvið við Gufunesbæ

Sleðabrekka - Setbrekka – útisvið Þetta svæði er nú þegar að einhverju leiti hálfmótað í skál. Aðeins þarf að móta meira brekkuna þannig auðvelt verði að renna sér á sleðum/snjóþotum á veturna. Svæðið gæti einnig verið miðpunktur fyrir viðburði á útisviði. Brekkan mótuð í hálfa skál gefur skemmtilega stemmingu útleikhúss. Tilvalin aðstaða fyrir leik- og grunnskólahópa og frístundaheimili til að koma og halda sýningar. Einnig til að skapa skemmtilega hverfisviðburði.

Points

Mikill fjöld krakkahópa kemur á svæðið og einföld umhverfisframkvæmd gæti gert heimsókn þeirra á svæðið ennþá skemmtilegri.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Hverfisráð fór yfir tækar hugmyndir og þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information