Langholtsvegur á 30

Langholtsvegur á 30

Legg til að öll umferð um Langholtsveg verði lækkuð niður í 30, þeir sem eru á hraðferð ættu að nýta sér stofnbrautir sb. Sæbraut og Suðurlandsbraut.

Points

Langholtsvegurinn liggur gegnum hverfi og sker hverfið endilangt með því að vera 50 gata. Sæbrautin liggur nánast samsíða og á fólk sem er að fara langt milli staða mikið frekar að nýta sér stofnbrautir en að vera drífa sig/stytta sér leið gegnum íbúðahverfi. Því ætti að hægja á Langholtsveginum og gera hann allan að 30 götu. Svo ég tali nú ekki um öryggi íbúa....

Það mætti líka þrengja götuna til að draga úr hraða frekar en að fjölga hraðahindrunum.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosninguna í verkefninu Hverfið mitt 2018. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information