Banna akstur eldsneytis-tankbíla um miðbæinn

Banna akstur eldsneytis-tankbíla um miðbæinn

Á hverjum degi ekur fjöldi tankbíla með tugi tonna af eldsneyti í gegnum miðbæinn um Mýrargötu, Kalkofnsveg og út á Sæbraut en þessar götur eru umkringdar veitingastöðum, hótelum og íbúðabyggð. Margir þessara tankbíla eru með tengivagn og er hreinlega hjákátlegt að sjá þessi flykki aka um þessar götur. Enginn vill hugsa það til enda hvað gerðist ef óhapp yrði.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2018 þar sem ekki er um að ræða eiginlegt nýframkvæmda- eða viðhaldsverkefni. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information