Frisbígolf í Öskjuhlíð

Frisbígolf í Öskjuhlíð

Frisbígolf er vinsæl, auðveld og ódýr leið til að stunda skemmtilega og holla útivist. Með uppsetningu aðstöðu fyrir frisbígolf í Öskjuhlíð bætist við nýr kostur til afþreyingar fyrir almenning á þessu fallega útivistarsvæði. Aðgangur að frisbígolfi á útivistarsvæðum í borginni er ókeypis og getur fólk á öllum aldri spilað þar sér til skemmtunar.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2018. Í Reykjavík eru nú sjö Frisbee golfvellir, og í samráði við Frisbeegolfsamband Íslands og Frisbeegolffélag Reykjavíkur hefur ekki verið talin þörf á fleiri slíkum völlum í Reykjavík að sinni. Áhersla verður frekar lögð á að viðhalda og betrumbæta núverandi frisbeegolfvelli í Reykjavík. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Frabært rísandi sport sem hendar öllum aldri!! Um að gera að setja meir líf á þetta frábæra svæði

Leyfum Öskjuhlíðinni að vera náttúruparadís í miðri borg þar sem fólk á öllum aldri getur notið þess að vera í ómanngerðu umhverfi og þarf ekki að hafa áhyggjur af fljúgandi frisbídiskum. Það eru önnur svæði hentugri fyrir frisbígolf.

Ég hleyp og hjóla mikið í öskjuhlíðinni og væri til í að geta gert það án þess að fá frisbídisk í hausinn. Svæðið hentar líka illa hefði ég haldið vegna trjánna.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information