Frisbígolf í Gufunesi - frágangur

Frisbígolf í Gufunesi - frágangur

Á útivistarsvæðinu í Gufunesi er eini 18 brauta frisbígolfvöllur landsins. Vegna stóraukins áhuga á frisbígolfi er nauðsynlegt að lagfæra brautir og teiga og bæta aðstöðuna á vellinum svo hún verði sambærileg við það sem tíðkast á öðrum frisbígolfvöllum í borginni.

Points

Frábær hugmynd. Æðislegur völlur. Frábært svæði.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Hverfisráð fór yfir tækar hugmyndir og þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Þar sem þetta er okkar eini alvöru keppnisvöllur og hefur hann nú séð betri daga væri frábært ef hann væri tekinn i gegn! :D

Það væri gaman að gera þennan elsta frisbígolfvöll í Reykjavík jafnflottann og aðra velli. Þarf ekki mikið upp á til að gera það.

Vantar einmitt WC þarna:)

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information