Körfuboltavellir í Gufunes

Körfuboltavellir í Gufunes

Að það verði gerðir einn eða jafnvel tveir körfuboltavellir í þessari frábæru útivistarparadís sem Gufunesbær er orðinn. Körfubolti er mjög vinsæll í hverfinu og væri mjög gott að hafa vel útbúinn völl með góðu undirlagi á þessum stað þar sem staðsetja þyrfti völlinn í góðu skjóli.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Hverfisráð fór yfir tækar hugmyndir og þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Körfubolti er fyrir alla. Löngu orðið tímabært að Grafarvogsbúar hafi aðgang að útikörfum í flotta hverfinu okkar þar sem börn, unglingar og aðrir geti komið saman og leikið sér í körfubolta. Stuðlum að útiveru og hreyfingu barna og ungmenna með því að hafa útikörfur í hverfinu okkar. Ball is life!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information