Hjólastígur

Hjólastígur

Ég vil að haldið verðir áfram með hjólastíginn fyrir neðan hamrana í Hamrahverfi í Grafarvogi. Það var byrjað á þessum stíg fyrir nokkrum árum og síðan ekki söguna meir. Búið er að malbika örílitinn bút og mikið væri nú gott ef þetta verkefni kláraðist áður en farið er í eitthvað annað. Þessi tillaga hlaut góða kosningu og ég og fleiri bíðum í ofvæni eftir því að þessi tillaga verði að veruleika.

Points

Hér má alveg vera áfram malarstígur. Betra að ganga á þeim á veturna og þegar blautt er á öðrum árstíðum.

Hugmynd þessi var metin tæk af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndin fór í framhaldi fyrir hverfisráð. Lokaniðurstaðan er sú að þessi hugmynd er ein af þeim 25 sem kosið verður um í haust 2018 í þínu hverfi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information