Ævintýrasvæði í Elliðaárdal

Ævintýrasvæði í Elliðaárdal

Bæta samverusvæðið í skóginum í Elliðaárdal svo það verði huggulegt fyrir fjölskyldur að koma þangað í lautarferð. Svæðið þar sem Leikhópurinn Lotta hefur verið með leiksýningar er skemmtilegt rjóður þar sem er hægt að fara í lautarferð, leika sér, grilla pylsur og njóta samvistar fjölskyldunnar. Það mætti lappa upp á svæðið og bæta leiktækjum úr viði og hafa þetta eins náttúrulegt og mögulegt er. Þarna er tækifæri að útbúa samverusvæði fyrir börn og fjölskyldufólk til þess að njóta góðrar stundar í Reykvískri náttúru.

Points

Að bjóða fjölskyldum inn í ævintýraheim Elliðaárdalsins og leyfa þeim að leika sér og borða nesti í fallegu, rólegu og náttúrlegu umhverfi.

Hugmynd þessi var metin tæk af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndin fór í framhaldi fyrir hverfisráð. Lokaniðurstaðan er sú að þessi hugmynd er ein af þeim 25 sem kosið verður um í haust 2018 í þínu hverfi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information