Lýsum upp göngustíginn fyrir neðan Strandveginn

Lýsum upp göngustíginn fyrir neðan Strandveginn

Göngustígur liggur fyrir neðan Strandveginn, meðfram golfvellinum hjá Korpúlfsstöðum og alla leið að Úlfarsá. Það sárvantar lýsingu á þessari leið fyrir vegfarendur.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2018 þar sem verkefnið sem um ræðir í hugmyndinni er í öðru ferli innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Hugmyndinni verður vísað sem ábendingu inn í það ferli. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Mjög nauðsynlegt verkefni.

Óþarfi að auka ljósmengun, þarna er gott að horfa til himins og sjá störnur og norðurljós ef maður er á göngu í myrkri. Nóg af upplýstum göngustígum annars staðar.

Stígurinn er mjög mikið notaður. Í skammdeginu finnst fólki gott að fara út að ganga seinnipartinn (eftir vinnu t.d.) og það er frekar erfitt að feta sig áfram í svartamyrkri. Því væri svo gott ef hægt væri að lýsa okkur leiðina.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information