Útakstur frá Þjóðhildarstíg yfir á Reynisvatnsveg

Útakstur frá Þjóðhildarstíg yfir á Reynisvatnsveg

Útbúa útakstur af bílaplani við Gullhamra/Krónuna/KFC út á Reynisvatnsveg.

Points

Eftir að umferðarljósum var breytt, þá myndast oft umferðarteppa við gatnamótin og löng röð upp Þúsöld. Hvernig væri að létta á og opna útakstur af bílaplani við Gullhamra/Krónuna/KFC út á Reynisvatnsveg.

Það væri líka fínt að fá hægri beygju frá gatnamótum inn á Vesturlandsveginn aftur án þess að þurfa að bíða á umferðaljósum, svona eins og þetta var hér áður en gatnamótunum var breytt.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosninguna í verkefninu Hverfið mitt 2018. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Löngu tímabært!

Þetta er algjörlega nauðsynleg aðgerð. Það myndast oft hrikaleg umferðarteppa þarna. Sérstaklega á háannatímum.

Þetta myndi létta mjög á umferðarteppu sem þarna myndast og gera inn og útakstur á bílaplani Krónunnar til að koma í veg fyrir umferðateppuna sem þar myndast á álagstímum þar sem margir keyra inn og út af bílaplaninu á sama stað.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information