Lagfæra göngustíga á milli Sæviðarsunds og Kleppsvegar

Lagfæra göngustíga á milli Sæviðarsunds og Kleppsvegar

Göngustígar orðnir ójafnir og hættulegir, sérstaklega fyrir fatlaða íbúa á svæðinu. Höldum við og lagfærum það sem er gott í borginni og látum það ekki drabbast niður. Er ekki ráð að huga að því áður en ráðist er í ný verkefni. Þessir göngustígar eru virkilega vel staðsettir, ekki síst fyrir hreyfihamlað fólk svo það þurfi ekki að vera við umferðargötur en því miður eru þeir hættulegir yfirferðar að óbreytttu

Points

Bætum aðgengi fyrir fatlað fólk

Gott aðgengi er mikilvægt fyrir alla. Þetta á að vera hluti af reglulegu viðhaldi borgarinnar.

Hugmynd þessi var metin tæk af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndin fór í framhaldi fyrir hverfisráð. Lokaniðurstaðan er sú að þessi hugmynd er ein af þeim 25 sem kosið verður um í haust 2018 í þínu hverfi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Bráðnauðsynlegt til að auðvelda kolvetnalausar samgögnur.

Aðgengi fatlaðra er jafnréttismál.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information