Hreinsa og snyrta umhverfið í Mjódd

Hreinsa og snyrta umhverfið í Mjódd

Snyrta og bæta umhverfis skiftistöð Strætó, setja upp góða bekki, úti og inni, opna snyrtinguna og halda þessu svæði hreinu, þarf að lagfæra torgið sunnan við göngugötuna í Mjódd, eins torgið fyrir framan Breiðholtskirkju, fjarlægja aspir á því svæði og lagfæra gangstéttarhellur á öllu þessu svæði. þær eru stórhættulegar.

Points

Þetta svæði er ekki aðlaðandi, gangstéttahellur víða brotnar

Þarf nauðsynlega að laga,er frekar sóðalegt í dag

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2018 þar sem verkefnið sem um ræðir í hugmyndinni er í öðru ferli innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Hugmyndinni verður vísað sem ábendingu inn í það ferli. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Strætóaðstaðan í Mjódd er í niðurníðslu, það þarf nauðsynlega að taka þetta svæði í gegn.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information