Útibíó á Klambratúni

Útibíó á Klambratúni

Setja upp bíótjald og hljómtæki á Klambratúni í sumar og sýna einhverja góða ræmu og/eða bara sýna HM-fótboltaleikinn. Mögulega gæti ÍTR séð um þetta og fengið að halda fjáröflun í kringum sýningarnar þar sem þeir myndu selja miða á svæðið eða fyrir poppi og kóki fyrir.

Points

Myndar skemmtilega stemningu og hvetur til útiveru í sumar. Einnig væri þetta tækifæri fyrir ÍTR að ná fram einhveri fjármögnun fyrir íþróttastarfið sitt.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Hverfisráð fór yfir tækar hugmyndir og þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information