Gönguleið milli víkurhverfis og staðahverfis

Gönguleið milli víkurhverfis og staðahverfis

Undirgöng / göngubrú

Points

Nú er búið að sameina Kelduskóla Korpu og Vík og því ætti að vera auðveldara fyrir börn að komast milli hverfanna annað en að fara langa vegalengd til að komast í undirgöng sem liggja hjá Borgahverfinu. Legg til að sett verði undirgöng eða göngubrú þar sem golfvöllurinn er Staðahverfismegin yfir Strandveg yfir í Víkurhverfi. Eins og staðan er núna þá er ekki áhættulaust fyrir börn að fara yfir Strandveg þar sem engin er gangbrautin og lýsingar er töluvert ábótavant!

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Hverfisráð fór yfir tækar hugmyndir og þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Mjög mikilvægt fyrir börn og unglinga að komast örugga leið á milli hverfa þar sem strætó gengur ekki einu sinni á milli þeirra

Algerlega nauðsynlegt þar sem börn eiga í erfiðleikum með að komast leiðar sinnar milli hverfa við það eitt að hjóla eða ganga til skóla nema að fara efri leið yfir fjölfarin gatnamót og götur.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information