Breyta gönguljósum

Breyta gönguljósum

Það er nauðsynlegt að breyta umferðasljósunum við Hofsvallagötu/Hringbraut þannig að þegar græni kallinn lýsir þá sé lokað fyrir aðra um ferð en gangandi fólks, ekki eins og er í dag að bílar mega beygja en eiga að taka tillit til gangandi vegfarenda. Það virkar bara ekki, því miður, þess vegna verða slysin á gangandi fólki svona tíð þarna.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosninguna í verkefninu Hverfið mitt 2018. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information