Færa söfnunarkassa við Grímsbæ

Færa söfnunarkassa við Grímsbæ

Söfnunarkassar Skáta og Rauða Krossins við Grímsbæ eru á gangstéttinni og þrengja þar verulega að og skerða útsýni verulega, þetta er sérstaklega slæmt þar sem hjólandi er beint þarna um. Bílastæðin í kring eru nánast undantekningalaust ónotuð og því ekkert því til fyrirstöðu að nýta eitt þeirra undir þessa gáma.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Hverfisráð fór yfir tækar hugmyndir og þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Afhverju má ekki búa til smá flöt við hliðina á stæðunum undir þessa kassa svo hægt sé að nýta bílastæðin og labba yfir að kössunum.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information