Góðan leikvöll fyrir hverfið við Borgarspítala

Góðan leikvöll fyrir hverfið við Borgarspítala

Leikvöll fyrir Á-lönd, Markar-, Kjarr- og Klifveg. Þarf að bæta í þennan sem er fyrir (hann er mjög lítill, bara rólur og vegasalt) eða að gera nýjan. Langt að fara á næsta leikvöll. Mörg ný börn í þessu litla hverfi. :)

Points

Vantar leikvöll handa krökkunum :)

Hugmynd þessi var metin tæk af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndin fór í framhaldi fyrir hverfisráð. Lokaniðurstaðan er sú að þessi hugmynd er ein af þeim 25 sem kosið verður um í haust 2018 í þínu hverfi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Tek undir þetta. Það sárvantar leikvöll fyrir börnin í hverfinu við Borgarspítalann til að safnast saman á. Sérstaklega þau yngri sem ekki fara ein yfir götu. Það væri etv. hægt að endurskipuleggja opna svæðið milli Álftalands og Fossvogsvegar, hjá körfuboltavellinum, sjá mynd.

Þetta hverfi hefur gleymst og leiktækjum hefur fækkað síðustu ár í hverfinu og það þarf að bæta. Það er langt í næsta leiksskóla/skóla og nóg af góðu plássi til að setja upp leikvelli. Húsin þarna eru mjög barnvæn en hverfið ekki!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information