Gróðursetning meðfram göngustíg við Korpúlfsstaðaveg

Gróðursetning meðfram göngustíg við Korpúlfsstaðaveg

Gróðursetjum fleiri tré og runna meðfram göngustígnum við Korpúlfsstaðaveg milli Brúnastaða og Barðastaða. Gróðurinn er vel þéttur á neðri part stígsins, en verður berangurslegri því ofar sem gengið er. Sérstaklega þegar farið er framhjá Kelduskóla Korpu að Barðastöðum. Einhverjir runnar eru dauðir milli Brúnastaða og Bakkastaða og það sér á hljóðmöninni á einum stað. Þetta yrði skjólbetri og ánægjulegri leið fyrir gangandi, hjólandi og akandi.

Points

Hugmynd þessi var metin tæk af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndin fór í framhaldi fyrir hverfisráð. Lokaniðurstaðan er sú að þessi hugmynd er ein af þeim 25 sem kosið verður um í haust 2018 í þínu hverfi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

😀

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information