Pallur og útsýnisskífa á hitaveitutankana

Pallur og útsýnisskífa á hitaveitutankana

Hugmyndin er að koma upp stiga eftir einum tankinum sem leiðir fólk að útsýnispalli ofan á þakinu. Þar þyrfti að reisa grindverk og á grindverkinu væri hálfgerð hringsjá sem hægt væri að setja inn örnefni, kennileiti og skemmtilegar staðreyndir um höfuðborgarsvæðið.

Points

Væri skemmtilegur annar kostur við Perluna, sem nú er farið að rukka inn á. Þá bæði fyrir heimamenn og ferðamenn. Myndi mögulega draga meira líf inn í hverfið og koma þessu kennileiti Grafarholts almennilega á kortið.

Hugmynd þessi var metin tæk af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndin fór í framhaldi fyrir hverfisráð. Lokaniðurstaðan er sú að þessi hugmynd er ein af þeim 25 sem kosið verður um í haust 2018 í þínu hverfi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Skemmtileg hugmynd og eflir hverfið okkar

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information