Fjölga bílastæðum fyrir framan leikskólann Austurborg

Fjölga bílastæðum fyrir framan leikskólann Austurborg

Leikskólinn Austurborg er 100 barna leikskóli og þar starfa um 30 starfsmenn. Það eru einungis 8 bílastæði fyrir framan leikskólann og það er allt of lítið. Gestir Grensáskirkju hafa oft verið að leggja í stæði Austurborgar þar sem stæði fyrir framan kirkjuna eru ekki nægilega mörg og bitnar þetta oft á foreldrum sem eru að sækja börnin sín í leikskólann og fá hvergi stæði. Nú er Læknavaktin brátt að fara að opna í Austurveri og má þá búast við að þegar síðdegisvaktin þar opni muni gestir hennar einnig leggja í stæði Austuborgar.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Hverfisráð fór yfir tækar hugmyndir og þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Óhæft ástand fyrir foreldra og starfsmenn þar sem bílastæði eru of fá til að anna leikskóla af þessari stærð

Algjörlega ósættanlegt að hafa svona fá bílastæði fyrir framan svona stórann leikskóla.

Það er algjörlega óásættanlegt að hafa svona fá stæði fyrir framan þennan stóra leikskóla. Kirkjan þarf líka fleiri stæði, það hlýtur að meiga taka þennan "trjálund" á bakvið kirkjuna og setja stæði þar sem þessar tvær stofnanir gætu samnýtt bílastæði.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information