Fleiri ruslafötur

Fleiri ruslafötur

Það vantar ruslafötur með jafnara millibili í Seljahverfið. T.d. er hringurinn í kring um Seljaskóla þannig að það er ein ruslafata allan stíginn fjær íþróttahúsinu en svo eru þrjár ruslafötur hinum megin. Á kortinu er merkt inn með rauðu ca. þar sem ruslafötur eru í kring um Seljaskóla og við Jaðarsel.

Points

Ruslafötur með jafnara bili hljóta að minnka ruslið. Sjái fólk enga ruslafötu í nágrenni við sig er líklegra að ruslinu sé bara hent í næsta runna en ef ruslafata sést þá hljóta að vera meiri líkur á að fólk hendi í þær.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Hverfisráð fór yfir tækar hugmyndir og þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information