Tennisvelli við Jaðarsel (sunnan við fótboltavöll)

Tennisvelli við Jaðarsel (sunnan við fótboltavöll)

Búa til tvo (2) afgirta tennis velli á grassvæðinu við Jaðarsel sunnan við grasfótboltavöllinnm ásamt lýsingu. Þetta mun styrkja alhliða hreyfingu fyrir íbúa hverfisins og eins efla svæðið við Jaðarsel sem almennt íþróttasvæði hverfisins fyrir alla íbúa. En fyrir eru skíðalyfta, sleðabrekka, og gras fótboltavöllur. Mikið af auðu svæði er þarna sem er lítið hirt og í mikilli órækt og því tilvalið að nýta svæðið.

Points

Nýta þegar illa nýtt svæði sem er þarna en um er að ræða autt svæði sem er illa hirt og í mikilli órækt. Þetta svæði er þegar með fótboltavelli, skíðalyftu og sleðabrekku og því tilvalið að bæta við enn einum íþróttamöguleika, tennis, sem allir íbúar hafa aðgengi að.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Hverfisráð fór yfir tækar hugmyndir og þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information