Grundargerðisgarður - skapandi leiksvæði

Grundargerðisgarður - skapandi leiksvæði

Grundargerðisgarður er fallegur og skemmtilegur garður sem hægt er að gera enn skemmtilegri. Til dæmis með því að bæta við öðruvísi og skapandi leiktækjum og viðhalda blómagarðinum betur. Einnig væri fallegt að sjá part garðsins nýttan undir matjurtargarða fyrir hverfisbúa. Lítið kaffihús og geymsla fyrir skemmtilegt útidót (bolta, sandkassadót osfrv.) væri toppurinn. Hægt er að líta á Plikta leiksvæðið sem er eitt vinsælasta leiksvæði Gautaborgar, sem fyrirmynd. Hér er einnig að finna skemmtileg leiksvæði: http://www.travelandleisure.com/slideshows/worlds-coolest-playgrounds#1

Points

Hugmynd þessi var metin tæk af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndin fór í framhaldi fyrir hverfisráð. Lokaniðurstaðan er sú að þessi hugmynd er ein af þeim 25 sem kosið verður um í haust 2018 í þínu hverfi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information