Strætómiða fyrir hnébeygjur

Strætómiða fyrir hnébeygjur

Í samstarfi við Strætó gæti borgin sett upp standa þar sem er hægt að "kaupa" miða í strætó í skiptum fyrir líkamsræktaræfingar. T.d. gera 30 hnébeygjur fyrir einn strætómiða. Þetta myndi hvetja fólk til að nota almenningssamgöngur og á sama tíma hvetja fólk til að stunda líkamsrækt. Það mætti setja fyrsta standinn upp á Hlemm eða Lækjartorgi. Hérna má sjá myndband þar sem þetta hefur verið gert áður: https://www.facebook.com/exploristscience/videos/1468685743229617/?hc_location=ufi

Points

Hvetur fólk til að nota almenningssamgöngur Er heilsueflandi

Hugmynd þessi var metin tæk af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndin fór í framhaldi fyrir hverfisráð. Lokaniðurstaðan er sú að þessi hugmynd er ein af þeim 25 sem kosið verður um í haust 2018 í þínu hverfi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information