Hraðaskilti í götur Foldahverfis

Hraðaskilti í götur Foldahverfis

Ökumenn í Foldahverfi aka margir hverjir of hratt um götur hverfisins sem skapar hættu fyrir börn og aðra gangandi vegfarendur. Hámarkshraði er víðast 30 í hverfinu. Logafold, Jöklafold, Frostafold og Funafold eiga það allar sameiginlegt að vera með hægri rétt í botnlöngum og oft er sá hægri réttur ekki virtur af ökumönnum. Lega gatnanna í Foldahverfi býður í mörgum tilvikum uppá hraðakstur þ.e. þetta eru langar götur og staðsettar í brekku. Blikkandi hraðaskilti með bros/fýlukalli eru sjónræn og áhrifarík leið til að draga úr umferðarhraða.

Points

Hraðaskilti eru hagkvæm leið til að draga úr umferðarhraða og fara ekki jafn illa með bifreiðar eins og hraðahindranir sem má finna víða í hverfinu.

Hugmynd þessi var metin tæk af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndin fór í framhaldi fyrir hverfisráð. Lokaniðurstaðan er sú að þessi hugmynd er ein af þeim 25 sem kosið verður um í haust 2018 í þínu hverfi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Við sem eigum börn í hverfinu getum ekki annað en tekið undir þetta

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information