Öryggismyndavélar við gatnamótin inn í hverfið

Öryggismyndavélar við gatnamótin inn í hverfið

Það er mikið um innbrot. Þá heyrir maður sögur af aðilum (sem betur fer ekki oft) að eltast við krakkana. Seltjarnarnes hefur sett upp öryggismyndavélar þar sem lögreglan er vinnsluaðili. Þær hafa gefist vel. Það eykur öryggi okkar og þar sem lögreglan hefur ein aðgang þá er gætt persónuverndarsjónarmiða. Væri gaman að heyra afstöðu fólk. Ég persónulega mundi gjarnan vilja þetta.

Points

Eykur öryggi okkar.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Hverfisráð fór yfir tækar hugmyndir og þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information