Göngubrú yfir Suðurlandsbraut við Vegmúla

Göngubrú yfir Suðurlandsbraut við Vegmúla

Koma upp göngubrú yfir Suðurlandsbraut við Vegmúla. Það myndi auðvelda samgöngur milli Háaleitishverfis og Laugardals. Bætir öryggi vegfarenda.

Points

Bætir öryggi gangandi og hjólandi vegfaranda.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2018 þar sem hún rúmast ekki innan fjárhagsramma verkefnisins. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Þarna ætti frekar að hægja á umferð og hanna gatnamót/gangbraut þannig að gangandi og hjólandi hafi sýnilegan forgang. S.s. með hellulögn og mögulega upphækun gatnamóta. Göngubrú festir forgang bíla í sessi gagnvart gangandi.

Þarna er mikil umferð og mjög erfitt að komast yfir á grænu gönguljósi þar sem bílarnir sem koma niður Vegmúla mega beygja til vinstri þótt það sé grænt ljós á gangandi vegfarendur sem skapar mikla hættu fyrir þá. Göngubrú myndi því bæta öryggi gangandi vegfaranda til muna

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information