Gönguljós yfir Safamýri

Gönguljós yfir Safamýri

Setja mætti upp gönguljós yfir Safamýri við þrengingu hjá Háaleitisskóla. Það skapar hættu þegar ökumaður úr annarri áttinni stöðvar við þrengingu til að hleypa gangandi vegfaranda yfir gangbraut en ökumaður gagnstæðri átt sér ekki gangandi vegfarandann og heldur að verið sé að hleypa sér í gegnum þrenginguna. Það er ómögulegt fyrir yngstu skólakrakkana að átta sig á þessari hættu. Einnig mætti setja upp gönguljós við efri gangbrautina við Álftaborg því ökumenn sem keyra niður Safamýrina sjá gangandi vegfarendur sem bíða við gangbraut seint (vegna beygju) og eiga þá til að keyra yfir gangbrautina án þess að stoppa fyrir gangandi. Þá mætti einnig setja gangbraut yfir Safamýri neðan við Miðbæ (þar sem nú er hraðahindrun).

Points

Mikil bílaumferð er um Safamýrina og getur verið erfitt fyrir lítil börn að fara yfir götuna sérstaklega á leið til skóla á morgnanna.

Það skapar hættu þegar ökumaður úr annarri áttinni stöðvar við þrengingu til að hleypa gangandi vegfaranda yfir gangbraut en ökumaður gagnstæðri átt sér ekki gangandi vegfarandann og heldur að verið sé að hleypa sér í gegnum þrenginguna. Það er ómögulegt fyrir yngstu skólakrakkana að átta sig á þessari hættu.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Hverfisráð fór yfir tækar hugmyndir og þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Nauðsynlegt að koma upp umferðarljósum þarna. Mjög óöruggt fyrir skólakrakkana að þurfa að fara þarna yfir.

Það er mjög nauðsynlegt að fá gönguljós þarna, enda mikil umferð skólabarna yfir götuna á þessum stað.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information