Færa bílastæði nær inngöngum íbúða

Færa bílastæði nær inngöngum íbúða

Færa bílastæði nær inngöngum íbúða svo ekki þurfa að ganga yfir umferðargötu í Stigahlíð 32-2 á leið í bílastæðin. Kemur til með að auka öryggi allra sem í þessum hluta Stigahlíðar

Points

Þar sem umferð hefur aukist á undanförnum árum um götuna hlýtur það að hljóma rökrétt að færa bílastæði fyrir íbúðir í Stigahlíð 32-2 nær inngöngum íbúðanna, sumsé beint fyrir framan þær. Þegar bílar koma úr beygjunni sem er við Stigahlíð 32 eiga ökumenn það til að gefa hressilega í þannig að bílarnir ná ansi miklum hraða og oft eiga íbúar fótum sínum fjör að launa klifjaðir innkaupapokum og jafnvel með barn á handleggnum tala ekki um ef afi gamli með stafinn er að koma í mat.......

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosninguna í verkefninu Hverfið mitt 2018. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information