útistyrktarþjálfunarsvæði fyrir fullorðna

útistyrktarþjálfunarsvæði fyrir fullorðna

Setja upp styrktarþjálfunarsvæði og tæki fyrir fullorðna við félagsmiðstöðina að Hæðargarði 31

Points

Heilsuefling eldri borgara er lykill að því að halda sjálfsbjargargetu sem lengst. Með því að staðsetja útitæki við félagsmiðstöðina er aðgengi gott að tækjunum og líklegra að þau verði notuð. Í kringum svæðið eru göngustígar og eru þeir þegar mikilvægur þáttur í heilsueflingu. Á sama tíma þarf að laga púttvöll sem er ofar í svæðinu sem og að passa að þessu svæði verði vel viðhaldið.

Hugmynd þessi var metin tæk af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndin fór í framhaldi fyrir hverfisráð. Lokaniðurstaðan er sú að þessi hugmynd er ein af þeim 25 sem kosið verður um í haust 2018 í þínu hverfi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Mætti líka vera á fleiri stöðum en við félagsmiðstöðvar eins og t.d. í Fossvogsdalnum við göngustíga. Hér er góð hugmynd frá Svíþjóð: https://www.youtube.com/watch?v=4tziIhuTB1M

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information