Afgirt hundaleiksvæði á Klambratún

Afgirt hundaleiksvæði á Klambratún

Vel staðsett svæði á Klambratúni mætti loka látlaust af fyrir þennan helsta hóp sem sækir garðinn, hundaeigendur og hunda.

Points

Ég held að ég geti fullyrt að flestir hundaeigendur séu sammála um að ekki sé nóg gert fyrir þá hérna í borginni. Hægt væri að breyta malarvellinum, sem lítið er notaður, í afgirt hundasvæði með litlum tilkostnaði.

Mjög vinsæll staður til að hittast með hunda.. Gott að leyfa þeim að vera lausum og þurfa ekki að hafa áhyggjur á meðan þeir leika. Nóg pláss til að koma þessu fyrir þarna.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Hverfisráð fór yfir tækar hugmyndir og þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information