Frumskógur fyrir börn, við Hallgrímskirkju t.d

Frumskógur fyrir börn, við Hallgrímskirkju t.d

Skemmtilegur frumskógur (eins og er við nýja bókasafnið í Árósum) þar sem börn geta leikið sér örugg í góðu skjóli (trjánna). Einföld lausn og skemmtileg.

Points

það vantar meira af leiksvæðum fyrir börn og líflegum hlutum í borgina. Mjög einfalt að koma fyrir trjábolum og búa til einskonar frumskóg /völundarhús og þarf ekki mikið pláss. Fyrirmyndin er við Dokk1 bókasafnið niðri við höfn í Árósum en þar er barnasvæði allt í kringum bókasafnið, bæði leiktæki og 'parís' í stéttinni allt í kringum safnið. Mætti gera svona eitthvað í kringum Hallgrímskirkju, eða hálfhring um Hörpu, eða annað hús ( https://dokk1.dk/om-dokk1/bygningen)

Hugmynd þessi var metin tæk af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndin fór í framhaldi fyrir hverfisráð. Lokaniðurstaðan er sú að þessi hugmynd er ein af þeim 25 sem kosið verður um í haust 2018 í þínu hverfi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information