Ungbarnarólur

Ungbarnarólur

Hafa amk 1 ungbarnarólu á leikvöllum í hverfinu, til dæmis í Grundargerðisgarðinn til að byrja með

Points

Það vantar sárlega rólur fyrir yngstu börnin í hverfið.

Sammála. Til dæmis eru tveir litlir róluvellir á milli Hólmgarðs og Bústaðarvegar. Hvorugur þeirra er með ungbarnarólum. Það mætti vel breyta öðrum róluvellinum þannig að hann henti betur yngri notendum.

Hugmynd þessi var metin tæk af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndin fór í framhaldi fyrir hverfisráð. Lokaniðurstaðan er sú að þessi hugmynd er ein af þeim 25 sem kosið verður um í haust 2018 í þínu hverfi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Algjörlega sammála! fluttum hingað í október og kom mér mjög á óvart hvað það vantar upp á leikvelli og þá sérstaklega ungbarnarólur í hverfinu.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information