Opna gönguleiðir í gegnum Norðurmýri

Opna gönguleiðir í gegnum Norðurmýri

Á sínum tíma var lokað fyrir gangandi umferð í gegnum Norðurmýrina við Rauðarárstíg í framhaldi af Háteigsvegi. Eftir mikla uppbyggingu í hverfinu og opnun nýrrar sundlaugar væri huggulegt að geta gengið þarna í gegn.

Points

Það lengir gönguleiðir úr Holtum og Hlíðum mikið að geta ekki gengið í gegnum Norðurmýrina frá Rauðarárstíg í átt að miðbæ á milli Flókagötu og Njálsgötu. Það væri t.d. styttra og skemmtilegra að ganga í Sundhöllina.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki innan verkefna eða valdheimilda Reykjavíkurborgar eða ekki á borgarlandi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information