Heitt vatn og girðing við Frostafold 14

Heitt vatn og girðing við Frostafold 14

Það vantar heitt vatn í brekkuna við Frostafold 14. Það má líka vera girðing, svo að sé hægt að halda sér í, í hálku og roki. Girðingin verður þá að vera til hliðanna, en ekki í miðju, svo að það sé hægt að ryðja snjónum í burt og setja sand eða salt. Ég er að hugsa um öryggið. Brekkan er ekki nóg oft hreinsuð, þegar það kemur snjór og hálka. Ég hef nefnt þetta á hverju ári. Svo að núna vona ég það verði eitthvað gert til að bæta öryggið. Takk fyrir.

Points

Það er öryggið sem ég er með í huga, að fá annað hvort heitt vatn í brekkuna, eða girðingu hana alla leið. Og þá til hliðanna, en ekki í miðju, svo að það sé hægt að ryðja snjónum burt og setja sand eða salt.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Hverfisráð fór yfir tækar hugmyndir og þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Stór hættulegur stígur fyrir börnin sem nota undirgöngina á veturna. Mjög slæmt að segja börnunum okkar ekki fara í undirgöngin því það á að vera öruggasta leiðin sem það er auðvitað, nema á veturna vegna hálku og þá skólinn er opinn. Upphitaðan göngustíg takk fyrir börnin okkar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information